Eins dauði ...
sksiglo.is | Aflafréttir | 16.05.2011 | 16:44 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 44 | Athugasemdir ( )
Refur lék lausum hala um æðarvarp við flugvöllinn
aðfararnótt mánudags. Þeir sem vernda varpland hundruð fugla af mörgum
tegundum bjóða rebba ekki velkominn og svo fór að eftir að hafa sundrað
allmörgum hreiðrum skokkaði hann götuna neðan af Granda með nýveidda
kollu í kjaftinum - þá kvað við hvellur og skolli lá í valnum.
Þau voru lögð hlið við hlið, kollan og rebbinn, þar sem þau áttu samleið síðustu mínúturnar. Þegar morgnaði kom í ljós að svartur hrafn hafði komist í feitt og ekki var annað eftir af fuglinum en beinin og blóðugur hamur. En krummi og varpeigandinn voru sáttir við sinn hlut, því eins dauði er annars brauð eins og þar stendur. -ök

Athugasemdir