Hér á ég heima!
Mér hefur alltaf fundist Siglufjörður eins og paradís á jörðu, mér leið strax svo vel hérna, fólkið gott og - eitt er hér það sem þið skiljið kannski ekki, það er friðurinn, herlaust land og velmegun. Í Grikklandi ólst ég upp við mikla fátækt og blóðugt borgarastríð hafði verið háð nokkru áður en ég fæddist. Hér á ég heima.“ Jóhannes er giftur Karólínu Sigurjónsdóttur og eiga þau tvo syni, Anton og Jóhannes. Hann hefur unnið margvísleg störf til sjós og lands og er nú starfsmaður hjá útgerð Hilmars Zophoníssonar.
Meðfylgjandi mynd er af Jóhannesi við bát sem hann átti og gerði út 1994-96 og hét Lína SI 25. Báturinn er nú varðveittur á vegum Síldarminjasafnsins. -ök
Athugasemdir