Hér á ég heima!

Hér á ég heima! Í dag eru þrjátíu ár síðan Jóhannes Arelakis fluttist til Siglufjarðar. Hann hafði verið bátsmaður á grísku flutningaskipi sem sigldi

Fréttir

Hér á ég heima!

Jóhannes við bátinn Línu SI-25
Jóhannes við bátinn Línu SI-25
Í dag eru þrjátíu ár síðan Jóhannes Arelakis fluttist til Siglufjarðar. Hann hafði verið bátsmaður á grísku flutningaskipi sem sigldi hingað fimm mánuðum fyrr. „Ég stóð frammá skipinu þegar siglt var inn fjörðinn og mér fannst strax að hér ætti ég heima. Það varð ást við fyrstu sýn - segir hann – á staðnum og Línu konu minni. Ég hafði víða farið um heiminn, byrjaði 16 ára á fraktskipum og sigldi til 45 landa. Svo var ég í tvö og hálft ár í gríska hernum undir einræðistjórn herforingjans Papaþopulos.

Mér hefur alltaf fundist Siglufjörður eins og paradís á jörðu, mér leið strax svo vel hérna, fólkið gott og - eitt er hér það sem þið skiljið kannski ekki, það er friðurinn, herlaust land og velmegun. Í Grikklandi ólst ég upp við mikla fátækt og blóðugt borgarastríð hafði verið háð nokkru áður en ég fæddist.                                                                                                                                                   Hér á ég heima.“                                                                                                                         Jóhannes er giftur Karólínu Sigurjónsdóttur og eiga þau tvo syni, Anton og Jóhannes. Hann hefur unnið margvísleg störf til sjós og lands og er nú starfsmaður hjá útgerð Hilmars Zophoníssonar.

Meðfylgjandi mynd er af Jóhannesi við bát sem hann átti og gerði út 1994-96 og hét Lína SI 25. Báturinn er nú varðveittur á vegum Síldarminjasafnsins.   -ök


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst