Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist í Héðinsfirði
sksiglo.is | Aflafréttir | 02.08.2012 | 14:18 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 35 | Athugasemdir ( )
Á
síldarævintýrinu um verslunarmannahelgina verður lesið úr óútkominni
spennusögu eftir Ragnar Jónasson, en hún hefur hlotið nafnið Rof og
kemur út hjá bókaforlaginu Veröld nú í haust.
Sagan er sjálfstætt framhald af siglfirsku glæpasögunum Snjóblindu og Myrknætti, sem komu út 2010 og 2011, en Snjóblinda vakti mikla athygli þegar hún kom út í Þýskalandi í fyrra hjá þýska útgáfurisanum Fischer, sem hyggst jafnframt gefa Myrknætti út, haustið 2013.
Að sögn Ragnars fjallar nýja skáldsagan um rannsókn á voveiflegu dauðsfalli í Héðinsfirði um miðjan sjötta áratuginn. Siglufjörður er þó sem fyrr miðpunktur rannsóknarinnar, en í upphafi sögunnar hefur bærinn verið settur í einangrun vegna farsóttar. Ungi lögreglumaðurinn, Ari, ákveður að nota tækifærið til þess að rannsaka hið gamla sakamál úr Héðinsfirði, með ófyrirséðum afleiðingum.
Lesið verður úr nýju bókinni í Þjóðlagasetrinu föstudaginn 3. ágúst klukkan 17.00.
Texti og mynd: Aðsent

Athugasemdir