Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist í Héðinsfirði

Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist í Héðinsfirði Á síldarævintýrinu um verslunarmannahelgina verður lesið úr óútkominni spennusögu eftir Ragnar

Fréttir

Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist í Héðinsfirði

Á síldarævintýrinu um verslunarmannahelgina verður lesið úr óútkominni spennusögu eftir Ragnar Jónasson, en hún hefur hlotið nafnið Rof og kemur út hjá bókaforlaginu Veröld nú í haust. 

Sagan er sjálfstætt framhald af siglfirsku glæpasögunum Snjóblindu og Myrknætti, sem komu út 2010 og 2011, en Snjóblinda vakti mikla athygli þegar hún kom út í Þýskalandi í fyrra hjá þýska útgáfurisanum Fischer, sem hyggst jafnframt gefa Myrknætti út, haustið 2013.
 
Að sögn Ragnars fjallar nýja skáldsagan um rannsókn á voveiflegu dauðsfalli í Héðinsfirði um miðjan sjötta áratuginn. Siglufjörður er þó sem fyrr miðpunktur rannsóknarinnar, en í upphafi sögunnar hefur bærinn verið settur í einangrun vegna farsóttar. Ungi lögreglumaðurinn, Ari, ákveður að nota tækifærið til þess að rannsaka hið gamla sakamál úr Héðinsfirði, með ófyrirséðum afleiðingum.
 
Lesið verður úr nýju bókinni í Þjóðlagasetrinu föstudaginn 3. ágúst klukkan 17.00.

Texti og mynd: Aðsent


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst