Enn og aftur tónlistarveisla

Enn og aftur tónlistarveisla Það er óhætt að segja að margir stórtónleikar hafa verið haldnir hér í Siglufirði að undanförnu. Papar með þá Gylfa Ægis og

Fréttir

Enn og aftur tónlistarveisla

Það er óhætt að segja að margir stórtónleikar hafa verið haldnir hér í Siglufirði að undanförnu. Papar með þá Gylfa Ægis og Bubba, Hjálmar, Gospel og nú síðast Mugison. Það voru ekki neinir smá karlar sem tróðu upp á Allanum síðast liðið föstudagskvöld.
Mugison og Björgvin Gíslason fluttu lög Mugison á svo snilldarlegan hátt að nokkrir hjúkrunarfræðingar hér í bæ máttu vart mæla fyrir aðdáun. Það var augljóst að þarna voru vanir menn á ferð og skemmtilegar sögur milli laga gerðu kvöldið enn skemmtilegra. Nú er bara að sjá hvað kemur næst uppúr tónleikahattinum.










Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst