ESB íhugar að taka upp íslenskættað kvótakerfi
visir.is | Fréttir á landsvísu | 22.04.2009 | 09:20 | | Lestrar 165 | Athugasemdir ( )
Samkvæmt drögum að nýrri skýrslu Evrópubandalagsins (ESB) um fiskveiðistefnu sambandsins er meðal annars velt upp þeim möguleika að ESB taki upp kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd. Fjallað er um málið í Financial Times. Þar segir að miklar væntingar séu um að stjórn ESB muni leggja til umfangsmikinn niðurskurð á stærð evrópska fiskiskipaflotans. Þetta á að vera grunnurinn að því að breyta um stefnu þar sem öllum er ljóst að núverandi stefna hefur alls ekki komið í veg fyrir ofveiði nær allra fiskistofna við Evrópu.
Samhliða þessu er lagt til að lönd og héruð innan ESB fái mun meira að segja um fiskveiðistjórnunina á eigin heimamiðum en nú er.
„Ein lausnin sem lögð er til væri að herða tökin á hinum frjálsa markaði og setja upp kerfi með framseljanlegum kvótum, kerfi sem þegar er til staðar á Íslandi," segir í Financial Times.
Samkvæmt skýrsludrögunum er ofveiði vandamál hjá 88% fiskistofna við Evrópu og ef ekkert verður að gert er hætta á hruni í útgerð og fiskvinnslu ESB.
Athugasemdir