Hann er knár karlinn
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.09.2009 | 07:00 | | Lestrar 921 | Athugasemdir ( )
Það er ekki að sjá á honum að hann sé kominn á sextugsaldurinn, karlinn er sprækur sem lækur og er aðaldrifkrafturinn í uppbyggingu Rauðku á hafnarsvæðinu. Hörður Júlíusson heitir maðurinn og vill helst halda sig til hlés og láta aðra um sviðsljósið en Höddi var um langt árabil einn aðalskemmtikraftur okkar Siglfirðinga.

Nú hefur hann ákveðið að tyrfa lóðina sem Sunnubragginn stóð á og ekki finnst honum það verra að vera umvafin fögrum fljóðum við tyrfinguna. Eitthvað fannst siglo.is vanta uppá grasið á torfinu en Höddi sagði það ekki mikið mál það yrði bara sáð í torfið. Þarna er Herði rétt lýst hann gefst ekki upp og vandamál eru til að leysa þau.

Athugasemdir