Hann er knár karlinn

Hann er knár karlinn Það er ekki að sjá á honum að hann sé kominn á sextugsaldurinn, karlinn er sprækur sem lækur og er aðaldrifkrafturinn í uppbyggingu

Fréttir

Hann er knár karlinn

Hörður Júlíusson alsæll með lífið
Hörður Júlíusson alsæll með lífið
Það er ekki að sjá á honum að hann sé kominn á sextugsaldurinn, karlinn er sprækur sem lækur og er aðaldrifkrafturinn í uppbyggingu Rauðku á hafnarsvæðinu. Hörður Júlíusson heitir maðurinn og vill helst halda sig til hlés og láta aðra um sviðsljósið en Höddi var um langt árabil einn aðalskemmtikraftur okkar Siglfirðinga.


Nú hefur hann ákveðið að tyrfa lóðina sem Sunnubragginn stóð á og ekki finnst honum það verra að vera umvafin fögrum fljóðum við tyrfinguna. Eitthvað fannst siglo.is vanta uppá grasið á torfinu en Höddi sagði það ekki mikið mál það yrði bara sáð í torfið. Þarna er Herði rétt lýst hann gefst ekki upp og vandamál eru til að leysa þau.




Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst