Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng Alls voru þeir komnir 1442 metra, samtals 44 metra frá síðasta fimmtudegi í Héðinsfjarðargöngum í morgun Héðinsfjarðarmegin.

Fréttir

Héðinsfjarðargöng

Alls voru þeir komnir 1442 metra, samtals 44 metra frá síðasta fimmtudegi í Héðinsfjarðargöngum í morgun Héðinsfjarðarmegin.

Bergið er freka leirkennt og tafsamt að bora, en þó lítið vatn á leið þeirra.

Verið var að keyra út eftir síðustu sprengingu og loft þar inni sambland af sterkum anga frá sprengiefninu og kolsýru, þrátt fyrir kröftuga loftræstingu, svo ljósmyndarinn fór því ekki alla leiðina inn að þessu sinni.

Í Héðinsfirði er stór hópur Háfellsmanna við allskonar vinnu tilheyrandi gangagerðinni.

Inni í göngunum Siglufjarðarmegin eru Metrostav menna bæði við bergsnyrtingu og fóðrun ganganna með steypu, sem þeir sprauta með miklum krafti á bergið.

Svo eru Háfellsmenn á fullu við gerð vegskálans Siglufjarðarmegin.


Myndir frá því morgun eru
HÉR

Ólafsfjarðarmegin hafa þeir náð 4000 metra áfanganum og eru komnir í 4001 metra, 44 metra frá síðasta fimmtudegi.
Bergið er svipað hjá þeim, leirkennt og frekar blautt með köflum.

 


Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst