Karlakór Reykjavíkur í Siglufirði 1. maí
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 14.04.2009 | 17:54 | | Lestrar 317 | Athugasemdir ( )
Karlakór Reykjavíkur heldur tónleika í Siglufirði 1. maí nk. Á komandi sumri eru rétt 80 ár síðan kórinn hélt fyrst tónleika á Siglufirði en alls hefur kórinn heimsótt Siglfirðinga 3svar áður. Einsöngvarar á væntanlegum tónleikum koma allir úr röðum kórmanna, jafnt tenórar sem bassar.
Í röðum söngmanna eru nokkrir sem eiga ættir að rekja til Siglufjarðar. Á efnisskránni verða fyrst og fremst þekkt íslensk lög og ma. eftir Bjarna Þorsteinsson. Yfirskrift tónleikana er “Vorgyðjan kemur”.
Anna Guðný Guðmundsdóttir er við píanóið en stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson.
Tónleikarnir hefjast kl 17.00 þann 1. Maí, miðaverð er einungis kr.1000- .
Tónleikarnir verða í Siglufjarðarkirkju.

Athugasemdir