Karlakór Reykjavíkur í Siglufirði 1. maí

Karlakór Reykjavíkur í Siglufirði 1. maí Karlakór Reykjavíkur  heldur tónleika í Siglufirði 1. maí nk. Á komandi sumri eru rétt 80 ár síðan kórinn hélt

Fréttir

Karlakór Reykjavíkur í Siglufirði 1. maí

Karlakór Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur  heldur tónleika í Siglufirði 1. maí nk. Á komandi sumri eru rétt 80 ár síðan kórinn hélt fyrst tónleika á Siglufirði en alls hefur kórinn heimsótt Siglfirðinga 3svar áður. Einsöngvarar á væntanlegum tónleikum koma allir úr röðum kórmanna, jafnt tenórar sem bassar.
Í röðum söngmanna eru  nokkrir sem  eiga ættir að rekja til Siglufjarðar. Á efnisskránni verða fyrst og fremst þekkt  íslensk lög og ma. eftir Bjarna Þorsteinsson. Yfirskrift tónleikana er “Vorgyðjan kemur”.

Anna Guðný Guðmundsdóttir er  við píanóið en stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson.

Tónleikarnir hefjast kl 17.00 þann 1. Maí, miðaverð er einungis kr.1000- .

Tónleikarnir  verða í Siglufjarðarkirkju.

Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst