Löndun á iðnaðarrækju

Löndun á iðnaðarrækju Löndun var í fullum gangi í gærkvöldi á iðnaðarrækju til Rækjuverkssmiðju Ramma hf.  Alls var landað um 200 tonnum upp úr Green

Fréttir

Löndun á iðnaðarrækju

Green Tromsö
Green Tromsö
Löndun var í fullum gangi í gærkvöldi á iðnaðarrækju til Rækjuverkssmiðju Ramma hf.  Alls var landað um 200 tonnum upp úr Green Tromsö, en rækjan verður notuð til að fylla uppí göp sem verða til við vinnslu á rækju veiddri á Íslandsmiðum. Að sögn starfsmanns Ramma hf. gengur ágætlega að vinna og selja rækjuna sem nýja verksmiðjan vinnur nú.
Veiðar á rækju ganga ágætlega þessa dagana og Múlaberg SI 22 kom inn í gærmorgun með rúm 50 tonn og Siglunes SI 70 landaði á föstudag rúmum 20 tonnum, annars er nóg að gera við höfnina og þegar hafnarvörðurinn var ynntur um heildarafla í júní var siglo.is vinsamlega bent á af skellihlæjandi skipstjóra að vera ekki að trufla manninn því hann var að vigta uppúr smábátunum.

Það var nóg að gera hjá lyftarmanninum.



Það er ekkert grín að keyra lyftara á bryggjunum enda eru þær afskaplega illa farnar.



Það er búið að vera nóg að gera á vigtinni í júní sagði Kjartan Óla.






Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst