Löndun á iðnaðarrækju
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 29.06.2009 | 07:00 | | Lestrar 396 | Athugasemdir ( )
Löndun var í fullum gangi í gærkvöldi á iðnaðarrækju til Rækjuverkssmiðju Ramma hf. Alls var landað um 200 tonnum upp úr Green Tromsö, en rækjan verður notuð til að fylla uppí göp sem verða til við vinnslu á rækju veiddri á Íslandsmiðum. Að sögn starfsmanns Ramma hf. gengur ágætlega að vinna og selja rækjuna sem nýja verksmiðjan vinnur nú.
Veiðar á rækju ganga ágætlega þessa dagana og Múlaberg SI 22 kom inn í gærmorgun með rúm 50 tonn og Siglunes SI 70 landaði á föstudag rúmum 20 tonnum, annars er nóg að gera við höfnina og þegar hafnarvörðurinn var ynntur um heildarafla í júní var siglo.is vinsamlega bent á af skellihlæjandi skipstjóra að vera ekki að trufla manninn því hann var að vigta uppúr smábátunum.
Það var nóg að gera hjá lyftarmanninum.

Það er ekkert grín að keyra lyftara á bryggjunum enda eru þær afskaplega illa farnar.

Það er búið að vera nóg að gera á vigtinni í júní sagði Kjartan Óla.

Athugasemdir