Menningasjóður Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutaði styrkjum til styrkumsækjenda í gær

Menningasjóður Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutaði styrkjum til styrkumsækjenda í gær Sjóðurinn var stofnaður þann 25. febrúar árið 2003 og veitir sjóðurinn

Fréttir

Menningasjóður Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutaði styrkjum til styrkumsækjenda í gær

Sjóðurinn var stofnaður þann 25. febrúar árið 2003 og veitir sjóðurinn árlega styrki til menningar- og líknamála. Skemmtileg dagskrá var á fundinum sem var haldinn í Allanum í gærkveldi. Leikfélag Siglufjarðar var með leikþátt og var Daníel Pétur Daníelsson þar í aðalhlutverki. Þorsteinn Bjarnason söng o‘ sole mio við undirleik Sturlaugs Kristjánssonar. Þórarinn Hannesson söng nokkur lög og las gamansögur. Guðrún Árnadóttir sá um að afhenda styrkina og var heildarupphæð styrkjanna að þessu sinni 1.500.000 kr.

Styrkþegar eru eftirfarandi:

Þjóðlagasetur Sr. Bjarna þorsteinssonar    Mynddiskur
Leikfélag Siglufjarðar                                  Leiksýning
Síldarminjasafnið                                        Jónsmessuhátíð
Norræna félagið á Siglufirði                         Vinabæjamót   
Ljóðasetur Íslands                                     Uppbygging
Herhúsfélagið                                             Rekstur
Kvenfélag Sjúkrahússins                            Rúlluborð
UMF Glói                                                     Ljóðahátíð
Sturlaugur Kristjánsson                             Tónleikar, meira salt
Siglufjarðarkirkja                                        Barna og æskulýðsstarf
Bergþór Morthens                                      Listasýning í Mosfellsbæ
Arnfinna Björnsdóttir                                 Sýning klippimynda
Systrafélag Kirkjunnar                               Safnaðarheimili
Þórarinn Hannesson                                  Gamansögur
Þorsteinn Bjarnason                                  Ópera Rigoletta
Gunnar Smári og Sigurður Ægisson            Útgáfa geisladisks

Í Stjórn Menningarsjóðs SPS eru Ólafur Jónsson sparisjóðsstjóri, Bogi Sigurbjörnsson fulltrúi Fjallabyggðar og Guðrún Árnadóttir fulltrúi Siglufjarðarkirkju. Myndir HÉR





Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst