Menningasjóður Sparisjóðs Siglufjarðar úthlutaði styrkjum til styrkumsækjenda í gær
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 10.07.2009 | 15:00 | | Lestrar 589 | Athugasemdir ( )
Sjóðurinn var stofnaður þann 25. febrúar árið 2003 og veitir sjóðurinn árlega styrki til menningar- og líknamála. Skemmtileg dagskrá var á fundinum sem var haldinn í Allanum í gærkveldi. Leikfélag Siglufjarðar var með leikþátt og var Daníel Pétur Daníelsson þar í aðalhlutverki. Þorsteinn Bjarnason söng o‘ sole mio við undirleik Sturlaugs Kristjánssonar. Þórarinn Hannesson söng nokkur lög og las gamansögur. Guðrún Árnadóttir sá um að afhenda styrkina og var heildarupphæð styrkjanna að þessu sinni 1.500.000 kr.
Styrkþegar eru eftirfarandi:
Þjóðlagasetur Sr. Bjarna þorsteinssonar Mynddiskur
Leikfélag Siglufjarðar Leiksýning
Síldarminjasafnið Jónsmessuhátíð
Norræna félagið á Siglufirði Vinabæjamót
Ljóðasetur Íslands Uppbygging
Herhúsfélagið Rekstur
Kvenfélag Sjúkrahússins Rúlluborð
UMF Glói Ljóðahátíð
Sturlaugur Kristjánsson Tónleikar, meira salt
Siglufjarðarkirkja Barna og æskulýðsstarf
Bergþór Morthens Listasýning í Mosfellsbæ
Arnfinna Björnsdóttir Sýning klippimynda
Systrafélag Kirkjunnar Safnaðarheimili
Þórarinn Hannesson Gamansögur
Þorsteinn Bjarnason Ópera Rigoletta
Gunnar Smári og Sigurður Ægisson Útgáfa geisladisks
Í Stjórn Menningarsjóðs SPS eru Ólafur Jónsson sparisjóðsstjóri, Bogi Sigurbjörnsson fulltrúi Fjallabyggðar og Guðrún Árnadóttir fulltrúi Siglufjarðarkirkju. Myndir HÉR

Athugasemdir