Miðnæturmót KS á Hólsvelli
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 19.06.2009 | 14:00 | | Lestrar 197 | Athugasemdir ( )
Sú nýjung verður hér á Sigló um helgina að haldið verður miðnæturmót í knattspyrnu. Þetta mót er það fyrsta sinnar tegundar og gaman verður að sjá hvernig keppendum líkar að spila fótbolta á kvöldin og nóttunni. Mótið er fyrir stúlkur í 3. flokki og verður spilað á tveim völlum 11 manna bolti.
Átta lið eru skráð til leiks og verður spilað frá 20:00 á föstudagskvöld til að verða 03:00 um nóttina. Á laugardeginum verður byrjað að spila um 17:00, stúlkurnar fá snyrtivörukynningu, grillað verður á Hóli í boði Rauðku og svo hefjast leikir að nýju um kvöldið og spilað til 03:00. Nú er um að gera að fjölmenna á völlinn og hvetja stelpurnar.
Þau lið sem taka þátt eru eftirtalin.
KS með 2 lið.
Tindastóll.
Grótta.
Valur 2 lið.
KR.
Álftanes.

Athugasemdir