Miðnæturmót KS á Hólsvelli

Miðnæturmót KS á Hólsvelli Sú nýjung verður hér á Sigló um helgina að  haldið verður miðnæturmót í knattspyrnu. Þetta mót er það fyrsta sinnar tegundar og

Fréttir

Miðnæturmót KS á Hólsvelli

Merki Knattspyrnufélags Siglufjarðar
Merki Knattspyrnufélags Siglufjarðar
Sú nýjung verður hér á Sigló um helgina að  haldið verður miðnæturmót í knattspyrnu. Þetta mót er það fyrsta sinnar tegundar og gaman verður að sjá hvernig keppendum líkar að spila fótbolta á kvöldin og nóttunni. Mótið er fyrir stúlkur í 3. flokki og verður spilað á tveim völlum 11 manna bolti.
Átta lið eru skráð til leiks og verður spilað frá 20:00 á föstudagskvöld til að verða 03:00 um nóttina. Á laugardeginum verður byrjað að spila um 17:00, stúlkurnar fá snyrtivörukynningu, grillað verður á Hóli í boði Rauðku og svo hefjast leikir að nýju um kvöldið og spilað til 03:00. Nú er um að gera að fjölmenna á völlinn og hvetja stelpurnar.

Þau lið sem taka þátt eru eftirtalin.

KS með 2 lið.
Tindastóll.
Grótta.
Valur 2 lið.
KR.
Álftanes.

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst