Miðnætursigling á Kayak
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 02.06.2009 | 10:00 | | Lestrar 309 | Athugasemdir ( )
Ferðafélag Skagafjarðar stendur fyrir miðnætur kayaksiglingu út í Drangey þann 12. júní næstkomandi.
Áætlað er að leggja af stað undir miðnætti frá Grettislaug og sigla út í eyju, fara hring um eyjuna, kanna sögustaði. Ferðin endar síðan þar sem hún hófst við Grettislaug. Það er ógleymanlegt að sigla um Skagafjörðinn í miðnætursól og góðu veðri. Til að tryggja að ferðin lukkist sem best þá var farin stutt æfingarferð í síðustu viku og eins og meðfylgjandi myndir sýna þá tóku náttúruöflin virkan þátt í æfingunni. Umgjörðin var fyrsta flokks, logn, eldrautt sólarlag og létt undiralda.
Nánari upplýsingar um ferðina er að finna í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands (www.fi.is) og að sjálfsögðu einnig á vefsíðu Ferðafélags Skagafjarðar (www.ffs.is). Hægt er að bóka sig í ferðina með því að senda tölvupóst á Hallbjörn (hallbjorn.bjornsson@capacent.is) eða í síma 862 2539.

Grettislaug

Athugasemdir