Miðnætursigling á Kayak

Miðnætursigling á Kayak Ferðafélag Skagafjarðar stendur fyrir miðnætur kayaksiglingu út í Drangey þann 12. júní næstkomandi.

Fréttir

Miðnætursigling á Kayak

Ferðafélag Skagafjarðar stendur fyrir miðnætur kayaksiglingu út í Drangey þann 12. júní næstkomandi.
Áætlað er að leggja af stað undir miðnætti frá Grettislaug og sigla út í eyju, fara hring um eyjuna, kanna sögustaði. Ferðin endar síðan þar sem hún hófst við Grettislaug.  Það er ógleymanlegt að sigla um Skagafjörðinn í miðnætursól og góðu veðri.  Til að tryggja að ferðin lukkist sem best þá var farin stutt æfingarferð í síðustu viku og eins og meðfylgjandi myndir sýna þá tóku náttúruöflin virkan þátt í æfingunni.  Umgjörðin var fyrsta flokks, logn, eldrautt sólarlag og létt undiralda.
 
Nánari upplýsingar um ferðina er að finna í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands (www.fi.is) og að sjálfsögðu einnig á vefsíðu Ferðafélags Skagafjarðar (www.ffs.is). Hægt er að bóka sig í ferðina með því að senda tölvupóst á Hallbjörn (hallbjorn.bjornsson@capacent.is)  eða í síma 862 2539.


Grettislaug

Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst