Rípill

Rípill Örlygur sendi okkur hjá Sksiglo útskýringar á örnefninu rípill. En eins og felstum Siglfirðingum er kunnugt um þá voru tillögur þeirra félaga í

Fréttir

Rípill

Félagar í Örnefnafélaginu Snók, Hannes, Palli og Örlygur
Félagar í Örnefnafélaginu Snók, Hannes, Palli og Örlygur
Örlygur sendi okkur hjá Sksiglo útskýringar á örnefninu rípill. En eins og felstum Siglfirðingum er kunnugt um þá voru tillögur þeirra félaga í Örnefnafélaginu Snók valdar úr hópi níu tillagna um nöfn á nývígða snjóflóðavarnargarða. Við hjá Sksigló óskum þeim innilega til hamingju.

Ríplaheitin og rökstuðningur fyrir þeim.

Ríplar
Rípill er nafn á garði eða hrygg í landslagi og allnokkuð notað í jarðfræði, t.d. jökulríplar. Í norðanverðum Héðinsfirði (framundan Músardal) er örnefnið Rípill. Rípill beygist eins og spegill.

Nýju nöfnin tengjast örnefnunum í grennd – samanber að í tengslum við forna jarðarheitið Hól eru mynduð nöfnin Hólshyrna, Hólsfjall, Hólsá og Hólsdalur.

Talið er frá suðri:
1.    Hlíðarrípill (sbr. gamla bæinn Hlíðarhús)
2.    Hafnarrípill (sbr. fornu jörðina Höfn)
3.    Skriðurípill (sbr. Skriðuhverfi, Jón Skriðulangur osfrv.)
4.    Skálarrípill (sbr. Hvanneyrarskál, Skálarhlíð)
5.    Bakkarípill (sbr. bæjarnafnið Bakki, söltunarstöðin Bakki, Stebbi í Bakka)

Örnefnafélagið Snókur

http://www.snokur.is
Tengd frétt HÉR

Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst