Rípill
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 08.07.2009 | 17:00 | | Lestrar 620 | Athugasemdir ( )
Örlygur sendi okkur hjá Sksiglo útskýringar á örnefninu rípill. En eins og felstum Siglfirðingum er kunnugt um þá voru tillögur þeirra félaga í Örnefnafélaginu Snók valdar úr hópi níu tillagna um nöfn á nývígða snjóflóðavarnargarða. Við hjá Sksigló óskum þeim innilega til hamingju.
Ríplaheitin og rökstuðningur fyrir þeim.
Ríplar
Rípill er nafn á garði eða hrygg í landslagi og allnokkuð notað í jarðfræði, t.d. jökulríplar. Í norðanverðum Héðinsfirði (framundan Músardal) er örnefnið Rípill. Rípill beygist eins og spegill.
Nýju nöfnin tengjast örnefnunum í grennd – samanber að í tengslum við forna jarðarheitið Hól eru mynduð nöfnin Hólshyrna, Hólsfjall, Hólsá og Hólsdalur.
Talið er frá suðri:
1. Hlíðarrípill (sbr. gamla bæinn Hlíðarhús)
2. Hafnarrípill (sbr. fornu jörðina Höfn)
3. Skriðurípill (sbr. Skriðuhverfi, Jón Skriðulangur osfrv.)
4. Skálarrípill (sbr. Hvanneyrarskál, Skálarhlíð)
5. Bakkarípill (sbr. bæjarnafnið Bakki, söltunarstöðin Bakki, Stebbi í Bakka)
Örnefnafélagið Snókur
http://www.snokur.is
Tengd frétt HÉR

Athugasemdir