Smíði litla árabátsins lokið
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.09.2009 | 10:00 | | Lestrar 676 | Athugasemdir ( )
Smíði bátsins lauk síðastliðin föstudag og er hann nú til sýnis á Torginu. Báturinn er
samvinnuverkefni Síldarminjasafnsins og Bátaverndarmiðstöðvar Gratangen í Norður Noregi. Verkefnið byrjaði 6. júlí sl. Björn Lillevoll bátasmiður og Skúli Thoroddsen trésmiður safnsins hófust þá handa að smíða bát með eyfirska laginu. Farið er í öllum aðalatriðum eftir “Bát Soffíu á Nesi” sem smíðaður var í Slippnum á Siglufirði 1934.
Fyrri hluti þessa samvinnuverkefnis fór fram í Gratangen síðsumars 2008 þegar Björn Jónsson og Örlygur Kristfinnsson safnstjóri dvöldu í Gratangen um nokkurra vikna skeið við smíði norsks árabáts undir verkstjórn Björns Lillevoll. Fjöldi fólks skoðaði bátinn á torginu í gær og voru allir sammála um að þarna væri glæsifley á ferð og handverk gott.

Athugasemdir