Vegavinna á Siglufirði
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 12.10.2009 | 20:33 | | Lestrar 555 | Athugasemdir ( )
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn Vegagerðarinnar unnið að ýmsum frágangsverkum við þjóðveginn frá Héðinsfjarðargöngum, allt að norðurenda Langeyrarvegar.
Í gag voru þeir að enda við að setja vegstikur meðfram veginum.
Einnig er lokið við að setja upp vegrið og fleira við Hólsbrúna og verið er að vinna við vegrið á svæðinu þar sem Skútuáin rennur undir þjóðveginn.
Þá hafa Háfellsmenn einnig verið við smá frágangsverk á gatnamótunum við afleggjarann frá Hóli í átt að Skarðsvegi.
Myndin hér tekin seinnipartinn í dag þar, sem Vegagerðarmenn voru að störfum

Athugasemdir