Vegavinna á Siglufirði

Vegavinna á Siglufirði Undanfarnar vikur hafa starfsmenn Vegagerðarinnar unnið að ýmsum frágangsverkum við þjóðveginn frá Héðinsfjarðargöngum, allt að

Fréttir

Vegavinna á Siglufirði

Vegagerðarmenn við norðurenda Langeyrarvegar.
Vegagerðarmenn við norðurenda Langeyrarvegar.
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn Vegagerðarinnar unnið að ýmsum frágangsverkum við þjóðveginn frá Héðinsfjarðargöngum, allt að norðurenda Langeyrarvegar.
Í gag voru þeir að enda við að setja vegstikur meðfram veginum.

Einnig er lokið við að setja upp vegrið og fleira við Hólsbrúna og verið er að vinna við vegrið á svæðinu þar sem Skútuáin rennur undir þjóðveginn.

Þá hafa Háfellsmenn einnig verið við smá frágangsverk á gatnamótunum við afleggjarann frá Hóli í átt að Skarðsvegi.
Myndin hér tekin seinnipartinn í dag þar, sem Vegagerðarmenn voru að störfum

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst