Glæstur sigur Fjallabyggðar í Útsvari
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 28.11.2009 | 07:00 | | Lestrar 572 | Athugasemdir ( )
Ein og flestir Siglfirðingar vita þá sigraði Fjallabyggð lið Akraness í spurningaþættinum Útsvari þann 21. nóvember.

Liðið er skipað þeim Þórarni Hannessyni kennara, Ingu Eiríksdóttur kennara og Guðmundi Ólafssyni leikara.
Tóti (Þórarinn) var hlaupari liðsins og Inga Eiríksdóttir sá um leikinn fyrir liðið og svo slógust þau um að svara spurningunum. Símavinur liðsins var Ríkey Siburbjörnsdóttir og bjargaði hún liðinu þegar þau götuðu á spurningu um hver tók við af Erich Honecker leiðtoga A- Þýskalands (1971-1989) sem aðal ritari miðstjórnar A-þýska kommnúnistafloksins og leiðtoga A-Þýskalands. Það stóð ekki á svarinu hjá Ríkeyju, "Já, ég held að þetta sé Egon Krenz" og fengu þau 15. stig, sannur vinur þar á ferð. Liðið hlaut 74 stig og eru þau sem stendur sjötta stigahæsta liðið ásamt Álftanesi ef við teljum ekki stigahæstu tapliðin með.
Fjallabyggð var að sjálfsögðu með stuðningslið með sér í sjónvarpssal, sem hefur vafalítið gefið þeim aukið sjálfstraust. Dóra Sallý tók nokkrar myndir sem Inga Eiríksdóttir kom áleiðis til okkar og þökkum við þeim kærlega fyrir það.

Upprennandi spyrlar

Næsta kynslóð keppenda í Útsvari.
Þeir sem sáu ekki þáttinn geta horft á hann HÉR:
Í kvöld etja kappi lið Mosfellsbæjar og Kópavogs. Þátturinn hefst klukkan 20.10 á RÚV og er honum sjónvarpað beint.
Nánar HÉR

Athugasemdir