Glöggt er gests augað.
sksiglo.is | Almennt | 21.06.2010 | 07:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 525 | Athugasemdir ( )
Á Siglufirði dvelur um þessar mundir myndlistamaðurinn Jonathan Harris. En hann er margverðlaunaður og viðurkenndur listamaður og hefur hann m.a. sýnt í MOMA safninu í New York og Pompidou safninu í París.
Myndlistamaðurinn Jonatahn Harris er í eðli sínu Sagnamaður og miðlar hann sögum sínum með með aðstoð nútímatækni.
Helstu viðfangsefni hans eru mannleg samskipti og hvernig við umgöngumst nútímatækni. Jonathan nýtir sér tölvutækni, mannfræði, myndlist og söguformið til að varpa nýju ljósi á mannleg samskipti og hegðun okkar.
Jonathan kemur frá Vermont í Bandaríkjunum en hefur búið undanfarin sex ár í New York. Fyrir tæpu ári síðan fann hann fyrir þörf á breytingu og því hefur hann ferðast um víða um heiminn og er nú kominn til Siglufjarðar.
Jonathan kom fyrst til þess að dvelja við vinnu í Herhúsinu en hefur nú færst sig um set og er nú í Sæluhúsinu við Aðalgötu.
Jonathan hefur haldið úti myndadagbók frá því í ágúst í fyrra. Hann setur inn á heimasíðuna sína http://www.number27.org/index.html ljósmyndir á hverjum degi í eitt ár frá 30 ára afmælisdegi sínum.
Það er gaman að sjá sýn hans á Siglufjörð og Ísland í gegnum myndadagbók hans, margar stórskemmtilegar og grátbroslegar sögur sem birtast þar.

Athugasemdir