Góðar veiðar hjá Rammaskipum

Góðar veiðar hjá Rammaskipum Aflabrögð hjá skipum Rammans hafa verið góð að undanförnu. Mánabergið landaði í Ólafsfirði í síðustu viku 223 tonnum af

Fréttir

Góðar veiðar hjá Rammaskipum

Múlabergið: http://rammi.is/
Múlabergið: http://rammi.is/

Aflabrögð hjá skipum Rammans hafa verið góð að undanförnu. Mánabergið landaði í Ólafsfirði í síðustu viku 223 tonnum af afurðum, afli úr sjó var 427 tonn.

 

Mest var veitt af þorski og ufsa og var aflaverðmæti veiðiferðarinnar um 140 milljónir króna. Skipið er nú á leið til karfaveiða á Reykjaneshrygg. Sigurbjörgin er væntanleg  til löndunar  um næstu helgi og hefur veiði verið góð hjá henni hingað til. Eftir löndun fer Sigurbjörg í  ca. þriggja vikna slipp til Akureyrar.
 
Rækjuverksmiðjan á Siglufirði hefur tekið rúmlega 1.100 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur langmestum hluta þess afla verið landað á Siglfufirði, en lítilsháttar af rækjunni hefur verið landað í Grundarfirði og ekið til Siglufjarðar. Rækjuvinnslan hefur gengið vel það sem af er ári og nú afla Sigurborg, Siglunes og Múlaberg hráefnis fyrir hana.
 
Fróði og Jón á Hofi byrjuðu humarveiðar frá Þorlákshöfn fyrir rúmum mánuði og hafa þær gengið vel fram að þessu. Skipin eru nú á veiðum við Surtsey og fer humarinn stækkandi eftir því sem veiðar færast vestur á bóginn. Sala á humri sem og reyndar öllum afurðum fyrirtækisins hefur gengið vel það sem af er ári.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst