Gospel í Siglufjarðarkirkju
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 07.11.2009 | 19:03 | | Lestrar 617 | Athugasemdir ( )
Á morgun, sunnudag, verður Gospelmessa í Siglufjarðarkirkju, eða öllu heldur eitthvað sem er mun nær því að vera Gospeltónleikar, því hið talaða orð verður í algjörum minnihluta, og eru Siglfirðingar eindregið hvattir til að mæta.
Sóknarpresturinn lofa ógleymanlegri stund, enda var hann á æfingu hins nýstofnaða Gospelkórs Siglufjarðar í dag (laugardag) og átti ekki orð til að lýsa hrifningu sinni. Stjórnandi og undirleikari er hinn góðkunni Óskar Einarsson úr Fíladelfíu í Reykjavík og honum til halds og trausts eru tvær ungar konur úr sama söfnuði, Hrönn Svansdóttir og Fanný Tryggvadóttir.
Sumsé: einstakt tækifæri til að sjá og njóta frábærrar tónlistar á morgun, sunnudag, kl. 14.00.
Myndir HÉR frá æfingu kórsins.

Athugasemdir