Gospeltónleikar í kvöld í Siglufjarðarkirkju
sksiglo.is | Almennt | 06.11.2010 | 06:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 274 | Athugasemdir ( )
Það vantar ekki skemmtanagleðina í Siglfirðinga þessa helgina en í Siglufjarðarkirkju í kvöld verða gospeltónleikar Gospelkórs Siglufjarðar. Hefjast þeir klukkan 20:00 og er aðgangur frír.
Það er enginn annar en Óskar Einarsson sem stýrir kórnum í kvöld en hann ætti að vera orðinn Siglfirðingum vel kunnur. Það muna eflaust flestir eftir því mikla fjöri sem myndaðist á útitónleikum kórsins um verslunarmannahelgina í sumar.
Má segja að þetta verði góð upphitun fyrir ballið með SagaKlass á Allanum seinna um kvöldið.




Athugasemdir