Grétar Rafn fyrirliði landsliðsins í 3-1 sigri í gær

Grétar Rafn fyrirliði landsliðsins í 3-1 sigri í gær Grétar Rafn Steinsson lék sinn 36. leik með A landsliði Íslands gegn Georgíu í gær. Drengurinn var

Fréttir

Grétar Rafn fyrirliði landsliðsins í 3-1 sigri í gær

Grétar Rafn og móðir hans Guðlaug.
Grétar Rafn og móðir hans Guðlaug.
Grétar Rafn Steinsson lék sinn 36. leik með A landsliði Íslands gegn Georgíu í gær. Drengurinn var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn því hann átti fyrsta skot leikins. Á 14. mín. átti Grétar snilldar fyrirgjöf sem rataði beint á kollinn á Garðari Jóhannsyni sem skoraði glæsilega. Ísland skoraði síðan annað mark á 17. mín. eftir skemmtilegan samleik og var þar að verki Ólafur Ingi Skúlason.
Georgíumenn náðu að minnka muninn á 33. mín. Grétar Rafn fór síðan meiddur af velli á 36. mín. og var slæmt fyrir Ísland því hann hafði verið einn besti maður Íslands í leiknum. Íslenska liðið kom ákveðið til seinni hálfleiks og uppskar víti á 54. mín. sem Veigar Páll Gunnarsson skoraði úr. Ísland sigraði verðskuldað 3-1 í góðum leik. Móðir Grétars Rafns Guðlaug Guðmundsdóttir taldi að guttinn hafi fengið spark í hné en verði snöggur að jafna sig eins og karlmenn gera jafnan í hennar ætt.

Athugasemdir

15.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst