Haraldur Gunnar í alþjóðlega söngvakeppni fyrir blinda

Haraldur Gunnar í alþjóðlega söngvakeppni fyrir blinda Siglfirðingurinn Haraldur Gunnar Hjálmarsson tekur þátt í fyrstu alþjóðlegu söngvakeppni fyrir

Fréttir

Haraldur Gunnar í alþjóðlega söngvakeppni fyrir blinda

Halli Gunni. Ljósmynd Birgir Ingimarsson
Halli Gunni. Ljósmynd Birgir Ingimarsson

Siglfirðingurinn Haraldur Gunnar Hjálmarsson tekur þátt í fyrstu alþjóðlegu söngvakeppni fyrir blinda, „Hljómar frá hjartanu“ sem haldin veðrur í Krakow Póllandi 18. – 20. nóvember næstkomandi. Það eru Lionsklúbbar í Krakow sem standa fyrir þessari keppni en markmiðið er að auka skilning á vanda blindra og sjónskertra sem er í góðu samræmi við markmið Lions um sjónvernd.

Samkeppnin er ætluð hæfileikaríkum söngvurum, sem eru blindir eða sjónskertir, en eru ekki starfandi tónlistarmenn. Texta- og lagahöfundar eru einnig blindir og sjónskertir. Vonast er til að keppnin geti vakið athygli á þeim og opnað dyr að tónlistariðnaðinum, svo þeir geti hafið sinn faglegan feril.

Haraldur, sem er félagi í Lionsklúbbnum Perlu í Reykjavík, samdi lag og texta sem hann flytur sjálfur. Ekki nóg með það heldur spilaði hann sjálfur á flest öll hljóðfærin fyrir upptökuna. Eftir að dómnefnd hafði hlustað á upptökuna var Haraldur valinn úr hópi fjölmargra umsækjanda.

Lionsklúbburinn Perlan í Reykjavík er skipaður blindum og sjónskertum félögum, sem hafa mikinn áhuga á þessu metnaðarfulla verkefni. Tónlist gefur blindum og sjónskertum mikla lífsfyllingu og nýja sýn á lífið. Félagarnir í Perlunni þekkja af eigin raun þann vanda sem þeirra líkar glíma við og sjá tækifærin sem felast í svona viðburðum. Klúbburinn hefur unnið hörðum höndum að því að fjármagna þetta verkefni og hefur hug á að þátttaka í keppninni verði að föstu verkefni hjá þeim.

Við fylgjumst auðvitað spennt með gengi Haraldar í keppninni og birtum frekari fréttir hér á síðunnu.

Siglfirðingar óska honum góðs gegnis.


Athugasemdir

14.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst