Helgi Svavar Helgason tónlistarmaður

Helgi Svavar Helgason tónlistarmaður Vegna tónleika Hjálma hér á Siglufirði næsta föstudag langaði siglo.is að forvitnast svolítið um trommuleikarann

Fréttir

Helgi Svavar Helgason tónlistarmaður

Vegna tónleika Hjálma hér á Siglufirði næsta föstudag langaði siglo.is að forvitnast svolítið um trommuleikarann Helga Svavar. Helgi hefur spilað á ógrynni tónleika og inná hljómdiska síðan hann flaug úr æskuheimilinu en ræturnar er sterkar og nánast á hverju sumri hefur hann komið heim til að spila með hinum ýmsu hljómsveitum.



Hver ertu og hvaðan kemurðu

Ég er Siglfirðingurinn Helgi Svavar Helgason, sonur Helga Magg og Guddu Björns, bróðir Ollu Helga og Magga Guddu. Úr raðhúsinu á milli Gumma Skarp og Bjarna málara.



Ertu giftur og áttu börn

Já, eiginkonan mín heitir Elsa Kristín og við eigum tvær dætur, Ólafíu og Áslaugu.



Hve langur er tónlistarferillinn og hvert stefnir þú

Ef skúrinn hjá pabba er talinn með þá hef ég verið að spila síðan ég var 6 ára, en ég hef haft atvinnu af því að leika á hljóðfæri mitt í rúm 13 ár.  Ég stefni á að halda áfram að spila, vanda val mitt á verkefnum og sinna hverju verkefni af fullum krafti. Einnig að fylgja innri sannfæringu út í hið ýtrasta til að halda tónlistinni spennandi og ánægjulegri fyrir mig, því það er ekkert verra en að spila tónlist í fýlu og leiða...   hahahahahahahah......



Telur þú að það sé líflegt tónlistarlíf hér á Siglufirði

Já ég held það, þó að ég hafi ekki búið hér lengi, virðist alltaf eitthvað vera í gangi þegar maður kemur heim. Einnig á Elías heiður skilinn fyrir starf sitt í gegnum tíðina á Siglufirði við að mennta unga tónlistar menn og halda tónlistarskóla Siglufjarðar gangandi.
Einnig má ekki gleyma öllum þeim mönnum sem hafa leikið í fjölda mörg ár tónlist á böllum og víða, fyrir Siglfirðinga, man ég þar helst eftir félögum í Harmónikkuhljómsveit Siglufjarðar, kórar, Stulla og hans mönnum, Tóta trúbador, Júlla trúbba og margir fleiri..
Einnig á fólkið sem heldur úti Þjóðlagahátíð mikið lof skilið.



Er það góð tilfinning að koma heim í fjörðinn fagra til að spila

Já, það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að spila í heimabæ.



Nú er frænkulistinn langur áttu von á að þær mæti allar á tónleikana

Já, ég ætlast til að þær mæti alla, annars fer ég í fýlu  :D



Loksins tónleikar með Hjálmum á Siglufirði af hverju

Ég var búinn að reyna þetta í nokkur skipti, en það gekk aldrei upp.  Svo frétti ég að við ættum vin á Siglufirði sem gæti aðstoðað okkur við að koma þessu á koppinn og þá gekk þetta loksins upp.



Eitthvað að lokum

Allir að mæta, þetta verða ALVÖRU Hjálma tónleikar ásamt einu sýningu myndarinnar í Siglfirskum kvikmyndahúsum. Forsala aðgöngumiða er hafin hjá Gulla Stebba í Sparisjóðnum þannig að nú er um að gera að drífa sig og ná sér í miða.







Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst