Kíwanishjálmar afhentir í Grunnskóla Fjallabyggðar

Kíwanishjálmar afhentir í Grunnskóla Fjallabyggðar Eimskip og Kiwanishreyfing gerðu með sér 3ja ára samning um kaup og dreifingu á reiðhjólahjálmum

Fréttir

Kíwanishjálmar afhentir í Grunnskóla Fjallabyggðar

Afhending Kiwanishjálma
Afhending Kiwanishjálma

Eimskip og Kiwanishreyfing gerðu með sér 3ja ára samning um kaup og dreifingu á reiðhjólahjálmum föstudaginn 21. janúar síðast liðinn og var samningurinn undirritaður í höfuðstöðvum Eimskipa af Óskari Guðjónssyni umdæmisstjóra og Gylfa Sigfússyni forstjóra Eimskipa.


Hjálmarnir eru alfarið íslensk hönnun og voru hannaðir af fyrirtækinu Koma. Hjálmarnir hafa breyst talsvert frá því að þeir voru fyrst afhentir og nýtast nú við fjölbreyttari tómstundaiðkun en áður. Hjálmarnir eru í fyrsta sinni í tveimur litum bleikir og bláir og eru með sérstökum endurskinsmerkjum sem sannreynd hafa verið að eyðileggja ekki styrk hjálmsins. Þessir hjálmar verða síðan afhentir fyrstubekkingum grunnskóla.
Kiwanishreyfingin og Eimskip afhenda hjáma í byrjun maí í ár en undanfarin ár hafi Eimskip og Kiwanishreyfingin gefið öllum börnum í fyrsta bekk grunnskólanna hjálm, til nota á reiðhjólum, hlaupahjólum, línuskautum og hjólabrettum. Yfir 20 þúsund börn hafa notið góðs af þessari gjöf Eimskips og Kiwanis og hafa hjálmarnir nú þegar sannað gildi sitt.

Kiwanishreyfingin er ákaflega þakklát góðum stuðningi Eimskips og við fögnum þessum samningi. Kiwanishjálmarnir hafa vakið verðskuldaða athygli á heimsvísu innan hreyfingarinnar. Það fellur líka mjög vel að alheimsmarkmiðum Kiwanis, sem er að hjálpa börnum heimsins.
 
Hjálmaverkefnið fer þannig fram að klúbbar landsins skipta á milli sín svæðum og sjá um að dreifa hjálmum til 6 ára barna. Klúbbarnir hafa sinn háttinn hver, sumir dreifa til barnanna á skólatíma, aðrir efna til hjálmadags og brydda upp á skemmtidagskrá, ásamt því að bjóða upp á hressingu.

Kiwanisklúbburinn Skjöldur afhenti í dag 13 börnum hjálma í Grunnskólanum á Siglufirði, sá fjórtándi var veikur. Kiwanismenn nutu aðstoðar Jóns Konráðssonar lögreglumanns í Fjallabyggð, í lokin var boðið upp á hressingu.



Þrettán nemendur bíða spenntir eftir hjálmunum.



Steinar Baldursson, Jón Konráðsson og Baldur Jörgen Daníelsson forseti Skjaldar.



Lögreglan að ræða við börnin.



Börnin hlusta hugfangin á.



Smeikur við lögguna, betra að vera hjá Mundý kennara.



Hlusta á Jón löggu.



Komin með hjálmana í hendur.



Sungið fyrir gesti.



Arnar Ólafsson og Jóhannes Friðriksson, kiwanismenn afhenda svala og kex.



Steinar, Sigurður, Jónína skólastjóri, Arnar, Jóhannes, og Ásdís kennari.

Ljósm.GJS




Athugasemdir

09.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst