Hraðahindranir í felulitum

Hraðahindranir í felulitum Það er ekki ofsagt að brýn þörf er á úrbótum á merkingum hraðahindrana á götum Siglufjarðar eins og meðfylgjandi myndir sýna

Fréttir

Hraðahindranir í felulitum

Það er ekki ofsagt að brýn þörf er á úrbótum á merkingum hraðahindrana á götum Siglufjarðar eins og meðfylgjandi myndir sýna glöggt.




Sennilega kemur “merkingarleysið” þó síst við þá sem búa á staðnum og eru e.t.v. búnir að kynnast vandamálinu af eigin raun og því einnig búnir að leggja vel á minnið hvar helst þarf að gæta sín. Einhver myndi vilja benda á að hindranirnar séu þarna til þess að ökumenn haldi sig innan hraðatakmakanna sem er auðvitað tilgangurinn, en það er samt ekkert grín að aka yfir margar þeirra á aðeins 35. km. hraða á öðrum ökutækjum en fólksbílum með góða fjöðrun og dempara í topplagi.

Iðnaðarmaður nokkur fór á dögunum yfir hraðahindrun á Suðurgötu á sendibíl sínum, sem var fulllestaður af verkfærum og byggingarefni, með öllu grunlaus um hvað hann átti í vændum. Engum togum skipti að þegar ekið var yfir hina ómerktu hindrun, hóf allt sem í bílnum var sig “til flugs” og þegar það lenti aftur með miklum gauragangi, var engu líkara en bíllinn hefði farið eins og eina veltu eða svo.













Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst