Hrólfur og klippistofan Rebel
Hrólfur vinnur nú hörðum höndum að standsetningu nýrrar klippistofu í Kópavogi og stefnir að opnun hennar föstudaginn 4. september næstkomandi.
Þegar Sigló.is mætti á svæðið var margt um manninn hjá klippimeistaranum og mótorhjólatöffaranum enda á nógu að taka. Klippistofan sem verður að Nýbílavegi 18, við hliðina á American Style og Toyota, kemur til með að heita Rebel og vísar nafnið til mótorhjóls, en eins og mörgum er kunnugt um er Hrólfur mikill áhugamaður um mótorhjól.
Stefnt er að því að staðurinn opni föstudaginn 4. september og var sá dagur valinn með vísun til fjár. Ekki óskaði Hrólfur þó eftir aukningu þess fjár sem sjá má á myndunum en vinir klippimeistarans færðu honum það uppblásna fé þegar framkvæmdir hófust.
Í fyrstu verða tveir klippistólar á Rebel en mögulegt er að sá þriðji bætist við innan tíðar. Aðspurður um markhóp segir Hrólfur að hann stefni á að klippa aðallega karlmenn og krakka.
Sigló.is mun heimsækja Hrólf á ný þegar Rebel hefur verið opnuð til að sjá hvernig gengur hjá kauða.











Athugasemdir