Hver man ekki eftir Kaupfélagsbakaríinu?

Hver man ekki eftir Kaupfélagsbakaríinu? Þessi skemmtilega mynd er ein af þúsundum mynda Kristfinns Guðjónssonar í Ljósmyndasafni Siglufjarðar. Hún

Fréttir

Hver man ekki eftir Kaupfélagsbakaríinu?

Hressir bakarar í Kaupfélagsbakaríinu við Hvanneyrarbraut.
Hressir bakarar í Kaupfélagsbakaríinu við Hvanneyrarbraut.

Þessi skemmtilega mynd er ein af þúsundum mynda Kristfinns Guðjónssonar í Ljósmyndasafni Siglufjarðar. Hún er tekin í bakaríi Kaupfélags Siglufjarðar, KFS, við Hvanneyrarbraut 42. En hvenær?

 

Við eftirgrennslan kom í ljós að byrjað var að byggja húsið árið 1948. Strax og neðsta hæðin var tilbúin var komið upp fullkomnu bakaríi þar, ásamt sölubúð. Myndin var tekin þetta ár. Bakaríið var starfrækt fram undir 1970.

 

Egill Steingrímsson bakari er lengst til vinstri á myndinni, 22 ára. Hann gerðist síðar sjómaður og fórst í Elliðaslysinu 1962. Hilmar Þorkelsson er annar frá vinstri, þá 19 ára bakaranemi. Árið 1949 flutti hann til Akraness og býr nú í Kópavogi, orðinn 82 ára. Emil Andersen er á miðri mynd, 29 ára. Hann flutti til Akureyrar 1953, vann við vegaeftirlit og lést árið 1971.


Sigríður Jónsdóttir er við hlið Emils. Hún var þá 27 ára en lést árið 1963. Lengst til hægri er Steindór Hannesson brauðgerðarmeistari, maður Sigríðar. Steindór var 34 ára þegar myndin var tekin, hafði lært í Hertervigsbakaríi, farið til Kaupmannahafnar í framhaldsnám og starfað á Ísafirði þar til hann tók við Kaupfélagsbakaríinu. Steindór lést árið 1970.

 

Þess má geta að í eina tíð voru þrjú bakarí á Siglufirði, og veitti ekki af fyrir heimamenn og tugþúsundir síldarsjómanna.

 

 

Texti: Jónas Ragnarsson

 

Mynd: Kristfinnur Guðjónsson / Ljósmyndasafn Siglufjarðar





Athugasemdir

18.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst