Innlit á pósthúsið
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 29.09.2009 | 15:30 | | Lestrar 833 | Athugasemdir ( )
Hjá Póstinum vinna að meðaltali um 1.300 starfsmenn í um 1.000 stöðugildum. Vinnustaðir fyrirtækisins eru um 88, en þeim fer fækkandi þar sem Pósturinn leitar eftir samstarfi við önnur fyrirtæki, svo sem verslanir og banka til að sinna póstafgreiðslu.
Á pósthúsinu hér á Siglufirði vinna tvær stúlkur í afgreiðslu, þær Halldóra María Þormóðsdóttir sem er afgreiðslustjóri og Rebekka Viggósdóttir. Stöðugildunum var fækkað úr þremur í tvö núna fyrsta apríl. Halldóra hefur unnið hjá póstinum í 5 ár og 5 mánuði, en hún tók við af Rögnvaldi Þórðarsyni stöðvarstjóra sem starfaði hjá Póstinum í 47 ár. Rögnvaldur hætti að starfa hjá Pósti og síma þegar fyrirtækinu var skipt upp. Hann réði sig til Póstsins og var fulltrúi þar til hann tók við stöðvarstjóraembætti árið 1998, hann hætti þeim störfum árið 2007.
Rebekka er búin að vera hjá Póstinum í 1 ár, hún byrjaði sem bréfberi en vinnur nú í afgreiðslunni, en hún kemur til með að leysa Halldóru af þegar hún fer í barneignarleyfi í byrjun desember. Þrír starfsmenn vinna við póstútburð, nýjasti starfsmaðurinn er Gunnar Smári Helgason sem byrjaði fyrir rúmum þremur vikum.

Gunnar Smári Helgason
Gunnar Sigurðsson sem er búsettur á Grenivík fer í veg fyrir póstbílinn frá Reykjavík og kemur póstinum áfram til Siglufjarðar. Hann keyrir að meðaltali 330 km daglega. Rúnturinn er eftirfarandi: Sauðárkrókur- Hofsós-Siglufjörður-Fljót-Siglufjörður-Hofsós- Sauðárkrókur. Á hverjum föstudegi keyrir hann svo til Grenivíkur þar sem hann dvelur um helgar. Á virkum dögum býr hann hjá dóttur sinni, Valborgu Gunnarsdóttur sem vinnur hjá Póstinum á Sauðárkróki. Jafnframt því að flytja póstinn til Siglufjarðar þá dreifir Gunnar póstinum í fyrirtækin hér í bæ og keyrir einnig póstinum heim að hlaði í Fljótunum. Starfsmenn póstsins vilja koma því á framfæri við íbúa Siglufjarðar að merkja hús með númeri en það heyrir til undantekninga að merkingar séu viðunandi. Til þess að tryggja að Pósturinn geti komið sendingum rétt til skila er æskilegt að nöfn allra sem hafa aðsetur á viðkomandi heimili séu skráð á póstkassa, við póstlúgu eða á bjöllu. Góðar merkingar létta bréfberum og bílstjórum störfin og pósturinn kemst fyrr í hendur viðtakenda!

Það er orðið nokkuð langt síðan þessi forláta sími var í notkun. Fleiri Myndir.

Athugasemdir