Jeppinn Kalli
sksiglo.is | Aflafréttir | 09.08.2012 | 08:37 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 141 | Athugasemdir ( )
Nú á dögunum var jeppinn Kalli, F 103, fluttur úr gamla bílskúrnum sínum við Hvanneyrarbraut 40. Þetta er Willis af árgerð 1946 og var um áratugi í eigu Karls Sturlaugssonartrésmiðs og sona hans Hjartar og Guðlaugs.
Nýr áfangastaður var vélaverkstæði Gunnars Júlíussonar þar sem gera á jeppann upp á næstu misserum. Fyrsta myndin sýnir Gunna Júl skella fyrsta vatnsstrolanum á undirvagninn. Næst er mynd af Sveini Hjartarsyni, Guðlaugi Karlssyni og dóttur hans Guðrúnu - en jeppinn Kalli er einmitt í eigu þeirra og fleiri afkomenda Karls Sturlaugssonar.Aðrar myndir eru frá flutningnum og þar má greina nokkra úr viðgerðarteyminu sem myndað hefur verið kringum Kalla, Andrés Magnússon, Guðna Sveinsson og Ragnar Aðalsteinsson auk Gunna Júl. Lokaáfangastaður Kalla gamla verður svo væntanlega Síldarminjasafnið, þar sem ráðgert er að hann verði til daglegrar notkunar.
Texti: ÖK
Myndir: Sveinn Hjartarsson og Björn Valdimarsson
Athugasemdir