Jólamarkaður Rauðku
sksiglo.is | Almennt | 01.12.2012 | 13:47 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 795 | Athugasemdir ( )
Fjölskrúðugt er um að litast í Gallerý Rauðku núna þar sem fjöldi bæjarbúa hefur komið að bera augum og versla vörur af hinum ýmsu þjónustuaðilum og listamönnum.
Á markaðnum má finna allt milli himins og jarðar hvort sem það eru kleinur, snyrtivörur, bækur, listmundir eða prjónavörur. Mikil fjölbreytni er því í boði fyrir áhugasama gesti og gangandi enda vandaðar og skemmtilegar vörur í boði.
Í tilefni markaðarins er jólatilboð á heimalöguðu heitu súkkulaði ásamt heimalagaðri hjónabandssælu á aðeins 690kr. í allan dag á Kaffi Rauðku.


Athugasemdir