Jólastemming í skógræktinni í Skarðsdal
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 04.12.2009 | 15:15 | | Lestrar 501 | Athugasemdir ( )
Skógræktarfélag Siglufjarðar leggur sitt af mörkum við að skapa einstaka jólastemmingu í skógræktinni á morgun laugardag frá klukkan 13.00-15.00.
Íbúum Fjallabyggðar gefst kostur á að höggva sitt eigið jólatré og um leið að upplifa einstaka jólastemmingu í fallegu umhverfi. Skóræktarfélagið býður upp á heitt kakó og piparkökur í skógræktarhúsinu.
Fjölskyldur og einstaklingar eru beðnir um að koma að litla skógræktarhúsinu þar sem leiðsögumaður mun hjálpa til við að finna rétta tréð. Fólk er beðið að koma með sög með sér ef hún er til á heimilinu, þeir sem ekki eiga sög geta fengið hana lánaða á staðnum. Nauðsynlegt er að vera í góðum hönskum.
Verði á jólatrjánum er stillt í hóf en hvert tré kostar 5000 kr. Einnig verða til sölu greinar á leiði.
Allir velkomnir og við hvetjum fólk til að setja upp jólasveinahúfur eða jafnvel klæða sig upp í jólasveinabúning. Komið og njótið útivistar í fögru umhverfi. Munið að klæðið ykkur vel!
Nánari upplýsingar veitir formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar: Kristrún Halldórsdóttir í síma 847 7750.

Athugasemdir