Jólastuðið er að byrja
Það lítur allt út fyrir það að jólastuðið sé að byrja og einhverjir verslunar og veitingahúsaeigendur eru byrjaðir skreyta og sumir jafnvel búnir að því. Einhver íbúðarhús í bænum eru að færast yfir í ögn jólalegri búning.
Ég tók einn rúnt með jólasveinunum í gærkvöldi og tók nokkrar myndir af jólaljósunum og skreytingunum sem eru komin upp hingað og þangað um bæinn.
Í dag eru 40 dagar til jóla. Sem er alls ekkert svo langur tími þegar þú ert karlmaður og átt eftir að kaupa jólagjöf handa konunni þinni.
Jájá, jólin eru bara á leiðinni.













Athugasemdir