Jonathan IV
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 16.09.2009 | 10:00 | | Lestrar 402 | Athugasemdir ( )
Það voru Hollendingar sem voru í ævintýrasiglingu á seglskútunni Jonathan IV frá Southamton sem komu hér við á mánudaginn. Skipstjórinn er enskur og var skútan að koma með yfir hafið frá Grænlandi. Förinni er nú heitið til Noregs en fyrst ætlar hópurinn að sigla um Ísland í eina til tvær vikur áður en lagt verður í hann.
Hollenski hópurinn var sérstaklega ánægður hér á Siglufirði og þó sérstaklega þegar þau fóru í Sparisjóðinn til að skipta dönskum krónum í íslenskar enda gengi hagstætt til slíkra verka nú.

Auðvitað var íslenska fánanum flaggað.

Þarna sést vel hve skútan er stór og mastrið hátt.

Athugasemdir