Kennsla í fisktækni í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst haustið 2012.
sksiglo.is | Almennt | 15.08.2012 | 15:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 372 | Athugasemdir ( )
Áhersla verður lögð á íslenskan sjávarútveg sem eina af undirstöðu atvinnugreinum Íslendinga og mikilvægan þátt í menningu okkar og arfleið.
Í náminu verður auk kjarnagreina boðið upp á áfanga í sjávarútvegsfræðum, vinnuvistfræði, námstækni, fiskvinnslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja.Þá er lögð rík áhersla á vinnustaðanám og tengsl við fyrirtæki og stofnanir. Hægt verður að velja áfanga í sjávarlíffræði, umhverfisfræði og matvælafræði. Í boði verður námsleið til stúdentsprófs ásamt styttri námsleið í fiskiðnaði til framhaldsskólaprófs.
Námið leggur góðan grunn fyrir starfsfólk í fiskiðnaði, veitir þjálfun til fjölbreyttra starfa sem tengjast sjávarútvegi og er góður undirbúningur fyrir háskólanám.
Texti: Aðsendur
Mynd: GJS
Athugasemdir