Leikur á morgun í bikarnum!
sksiglo.is | Almennt | 24.05.2011 | 19:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 178 | Athugasemdir ( )
Leikur á morgun í bikarnum!
Á morgun fara strákarnir í KF suður yfir heiðar og spila við 1.deildar lið Hauka, í Valitor bikarnum. En Haukarnir féllu úr úrvalsdeildinni í fyrra en stefna á að fara þangað strax upp aftur.
Það verður því verðugt verkefni sem bíður okkar stráka sem hafa byrjað sumarið vel. Fyrst með sigri á móti nágrönnum okkar frá Dalvík í bikarnum og svo með jafntefli í mosfellsbæ á móti Aftureldingu á erfiðum útivelli.
Leikurinn sem átti að fara fram um síðustu helgi á móti Njarðvík var eins og áður hefur komið fram frestað og verður spilaður síðar þegar snjór verður farinn af vellum. Við komum til með að birta úrslitin á móti Haukum á fimmtudagsmorgun.
Athugasemdir