KF styður Sigga Hallvarðs

KF styður Sigga Hallvarðs Knattspyrnukappinn Sigurður Hallvarðsson ætlar að ganga frá Hveragerði til Reykjavíkur á föstudag til styrktar Ljósinu.

Fréttir

KF styður Sigga Hallvarðs



Knattspyrnukappinn Sigurður Hallvarðsson ætlar að ganga frá Hveragerði til Reykjavíkur á föstudag til styrktar Ljósinu.

Siggi var á sínum yngri árum á Siglufirði á sumrin og spilaði þar marga knattspyrnuleiki  með yngri flokkum KS.

Nú er KS sameinað Leiftri frá Ólafsfirði  í Knattspyrnufélag Fjallabyggðar.

KF ætlar að styrkja söfnun Sigga með allri innkomu af næsta heimaleik liðsins í 1.deild.

Leikurinn fer fram á Ólafsfjarðarvelli sama dag og Siggi ætlar að ganga,  föstudaginn 30. ágúst klukkan 18:00.

Ársmiðahöfum KF er frjálst að leggja sitt af mörkum.

 Mótherjar KF eru Völsungar frá Húsavík og leikir þessara liða hafa ávallt verið spennandi.

KF sendir Sigga baráttukveðjur.
Með fótboltakveðju,
Stjórn KF.


Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst