KF spilar æfingaleik við KA

KF spilar æfingaleik við KA KF spilar æfingaleik við KA í kvöld klukkan 19:00 um æfingaleik er að ræða því leikurinn er ekki hluti af neinu móti en

Fréttir

KF spilar æfingaleik við KA

KF spilar æfingaleik við KA í kvöld klukkan 19:00 um æfingaleik er að ræða því leikurinn er ekki hluti af neinu móti en annars er það að frétta af meistaraflokk að félagið samdi nú á dögunum við tvo drengi sem koma á láni frá KA.

Leikmennirnir léku með KF í Hleðslumótinu á dögunum og þeir hafa núna gengið frá lánssamningi. Sigurjón Fannar er varnarmaður en hann er fæddur árið 1990. Síðastliðið sumar spilaði hann sex leiki í fyrstu deildinni en samtals hefur hann leikið 18 leiki með KA á ferlinum.

Arnór Egill lék sjö leiki með KA síðastliðið sumar en þessi framherji er fæddur árið 1989.

Hugsanlegt er að fleiri leikmenn bætist við hópinn á næstu dögum.

Aðsent.


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst