Meistaraflokkur karla leikur sinn fyrsta leik
Þegar sumarið kemur bregða krakkar á leik. Það á einnig við um fótboltann. Meistaraflokkur karla leikur sinna fyrsta alvöru leik í sumar þegar bikarkeppni KSÍ hefst nú á sunnudag hjá KF.
Þrátt fyrir að bæði Ólafsfjarðarvöllur og Siglufjarðarvöllir komi vel undan vetri eru þeir ekki klárir í leikinn sem verður nú á sunnudag og því þarf að spila leikinn í Boganum á Akureyri. Andstæðingar KF í þessum firsta alvöru leik eru ungir strákar úr Skagafirði.Vinni KF leikinn verður næsti leikur á móti Þór sem eins og margir vita fóru í úrslitaleikinn í bikarkeppninni í fyrra. Það er því mjög verðugt verkefni að taka vel á drengjunum frá Sauðárkróki í Boganum á sunnudag klukkan 18:00.
Hvetjum alla stuðningsmenn KF til að mæta á leikinn í Boganum og styðja við bakið á okkar strákum í KF
Texti: Þorvaldur Þorsteinsson
Mynd: Aðsend
Athugasemdir