Kvæðamannamót á Siglufirði 3. Mars 2012

Kvæðamannamót á Siglufirði 3. Mars 2012 ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi

Fréttir

Kvæðamannamót á Siglufirði 3. Mars 2012

Chris Foster og Bára Grímsdóttir kvæðakona
Chris Foster og Bára Grímsdóttir kvæðakona

ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs.

Það eru starfandi kvæðamannafélög víða um land, fámenn og einangruð, en aðstandendur mótsins hafa fulla trú á því að ef við tökum höndum saman þá verður það til þess að efla þessa hverfandi þjóðarhefð.

Á mótinu verður þriggja klst. námskeið (2x1,5 klst) sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun
kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.

Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funa og koma beint frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss.  Þau munu halda stutta tónleika laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss.

Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn stíga á stokk, og gömludansaball í lokin. 

Dagskrá kvæðamannamótsins er enn í mótun en hún verður birt hér um leið og hún er fullmótuð.

Texti og mynd: Aðsent.




Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst