Kláðamaur
sksiglo.is | Almennt | 10.10.2012 | 20:30 | Gunnar Smári Helgason | Lestrar 738 | Athugasemdir ( )
Kláðamaur hefur gert vart við sig í Fjallabyggð nú í haust og líklega verið í gangi að einhverju leyti í sumar.
Búið er að greina nokkur tilfelli á Siglufirði og Ólafsfirði.
Kláðamaur getur orðið seigur að uppræta en til eru ágætis leiðbeiningar um meðferð.
Stærð kláðamaurs er um þriðjungur úr millimeter og sést yfirleitt ekki með berum augum en auðveldar er að sjá hann með stækkunargleri. Hann skríður inn í efsta húðlag húðarinnar en fer ekki dýpra en það í húðina.
Ofnæmisviðbrögð með kláða og útbrotum koma oft ekki fram fyrr en 6-8 vikum eftir smit. Maurinn sækir mest í húða á höndum, t.d. milli fingra og við úlnlið, á ökklum og fótum og þar með talið undir iljum. Hann sækir einnig í utanverð kynfæri og nárasvæði en getur farið víðast um líkamann en á ekki að fara í hársvæði höfuðs og andlit nema hjá ungabörnum upp að 2 ára aldri.
Smitleiðir maursins eru með snertingu, aðallega innan heimilis, mest milli þeirra sem deila sama rúmi eða í náinni líkamlegri snertingu. Minni en mögulegar líkur eru á smiti með klæðum, handklæðum og slíku og einnig er óalgengt að smitist með handarbandi. Auk heimila fólks geta staðir eins og leikskólar, dvalar- og hjúkrunarheimili þurft samhent átak til að uppræta kláðamaur.
Greining er ekki alltaf auðveld og stundum geta reyndir læknar verið í erfiðleikum framan af með greiningu. Stundum eru þó einkenni mjög augljós og auðveld ekki síst ef „göng“ eru í húð á milli húðbóla. Það lítur út eins og örlítið strik í húðinni stundum rautt og bólgið í kring ef ofnæmisviðbrögð eru virk. Læknir getur í sumum tilfellum notað nál og opnað endann á slíkum göngum og þá er möguleiki að sjá kláðamaurinn í smásjá.
Meðhöndlun er aðallega með áburði sem er nuddað í húð alls staðar nema í hárbotn og andlit (bera þarf á ytri eyru). Mest notaði áburður hér er Tenutex sem fæst án lyfseðils í apótekum. Best er að bera áburðinn á eftir vinnu eða skóla að kvöldi til og endurtaka það um morguninn eftir án þess að fara í sturtu. U.þ.b. 24 klukkutímum eftir að fyrst er borið á má fara í sturtu, fara í hrein föt, skipta um rúmföt og handklæði. Gott er að hvíla skó í ca 4 sólarhringa en svo lengi er talið að maurinn geti lifað utan líkama. Stundum er einföld Tenutex meðferð endurtekin ca 8 dögum síðar vegna eggja(nita) maursins sem gætu annars lifað af.
Veftilvísun um kláðamaur á vef Landlæknisembættisins
og önnur tilvísun á Húðlæknastöðinni
Valþór Stefánsson, læknir

Athugasemdir